Wednesday, December 3, 2008

Steve Vai

Þessi maður er lærifaðir allra gítarnörda heims. Hann vakti fyrst athygli þegar hann lék með Frank Zappa ungur að aldri og kom síðar fram í kvikmynd sem heitir Crossroads og er "must see" fyrir okkur alla. Tek það fram að hér er ekki um að ræða myndina með Britney Spears. Árið 1989 lék hann á plötu Whitesnake "Slip of the tounge" og vakti þá heimsathygli fyrir geðveikan gítarleik. 1992 gaf hann svo út sólóplötuna "Passion and Warfare" og þykir sú plata marka tímamót í því hvernig menn spiluðu á gítar. Það varð alger sprengja í gítarheiminum og Vai var sagður hafa endurskapað hljóðfærið.

Hér leikur hann lagið "For the love of God" sem er einmitt að þeirri plötu og er þetta af tónleikum frá árinu 2005 þar sem Holland Metropole Orchestra sér um undirleik.


3 comments:

Anonymous said...

Þess má geta að ef fólk vill sjá mann hafa bókstaflega mök við gítarinn sinn (þó á mjög fallegan máta sem er alls ekki óviðeigandi) þá mæli ég með "Tender Surrender", linkur hér fyrir þá sem eru interested: http://www.youtube.com/watch?v=Yw74sDWPH7U&feature=channel . En það sjást vel í "For the love of God" áhrifin frá því þegar hann spilaði með Zappa.

Anonymous said...

O_o snillingur,mistari og 1/2 kóngur gítarheimsins!!

Anonymous said...

En ég segi bara "ÞAÐ ER MJÖÖG SKRÍTIÐ HVERNIG HANN LÆYUR MEÐ GÍTARINN!"